Hefur þitt fyrirtæki sett sér
Fyrirtæki geta dregið úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum (GHL) og tekið þannig þátt í baráttunni við loftslagsbreytingar. Aðgerðir fyrirtækja í loftslagsmálum skipta sköpum og án þeirra er ólíklegt að þjóðir heims geti staðið við Parísarsáttmálann eða að Ísland nái markmiði sínu um að verða kolefnishlutlaust fyrir árið 2040.
Árið 2023 var nýtt loftslagsverkefni sett á lagnirnar á vettvangi Festu.
Festa leiðir í verkefninu saman æðstu stjórnendur íslenskra fyrirtækja sem hafa skuldbundið sig til að aðlaga kolefnisfótspor sitt að Parísarsáttmálanum með því að setja sér Science Based Targets (SBTi) markmið.
Forstjórar þessara fyrirtækja munu bera ábyrgð á árangri verkefnisins og vera andlit þess út á við. Verkefnið skapar þannig vettvang fyrir leiðtoga viðskiptalífsins sem vilja vera hérarnir og taka sér forystuhlutverk í loftslagsaðgerðum íslensks viðskiptalífs.
Viðskiptalífið getur hreyft sig hratt og verkefninu er ætlað að sýna það í verki. Fyrirtækin vilja vera frumkvöðlar bæði í orði og á borði - taka af skarið, leiða aðra áfram og bæta þannig ásýnd íslensks viðskiptalífs. Við hönnun verkefnisins er litið til viðlíka aðgerða meðal fremstu fyrirtækja á Norðurlöndunum.
Stefnuyfirlýsing verkefnisins var samþykkt af forstjórunum í september 2023 og mun verkefnið formlega hefjast árið 2024.
Í nóvember 2015 skrifuðu yfir eitt hundrað forstjórar fyrirtækja og stofnana undir yfirlýsingu um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL). Þetta var stór áfangi og ánægjulegt hversu góð þátttakan var, enda vakti verkefnið athygli á alþjóðlegum vettvangi og var kynnt á Parísarráðstefnunni um loftslagsmál (COP21) í lok árs 2015.
Yfirlýsingin kallast Loftslagsyfirlýsing Festu og Reykjavíkurborgar en Festa og Reykjavíkurborg hafa stutt fyrirtækin til að vinna markvisst að loftslagmálum sínum. Árið 2019 hóf Festa einnig samstarf með Akureyrarbæ og í febrúar 2020 bættist Sveitarfélagið Hornafjörður við. Á báðum stöðum voru það 20 fyrirtæki og stofnanir sem skrifuðu undir.
Afurðir þessa starfs er þekkingarsamfélag, sameiginleg aðferðafræði og Loftslagsmælir Festu (byggð á alþjóðlegum viðmiðum) sem fyrirtæki geta notað til að greina losun sína og setja sér markmið.
Til að auðvelda fyrirtækjum að halda utan um losun sína á gróðurhúsalofttegundum má nota Loftslagsmælir Festu. Þar eru samræmd viðmið og sniðmát sem hópur sérfræðinga á vegum Festu hefur sett saman til að auðvelda mælingar og markmiðasetningu um losun gróðurhúsalofttegunda.
Loftslagsyfirlýsing Festu og Reykjavíkurborgar, Festu og Akureyrarbæjar og Festu og Sveitarfélagsins Hornafjarðar, er yfirlýsing fyrirtækja og stofnanna um að vera sameiginlega ábyrg.
Loftslagsmælir Festu gerir mælingar og markmiðasetningu um losun GHL og úrgangs auðveldari. Þar koma fram leiðbeiningar, reiknivélar, stuðlar og innsláttarreitir. Loftslagsmælir Festu er upplagður til að fyrirtækin geti haldið utan um vinnu sína á þessu sviði. Hann er bæði til í excel skjali og í vefútgáfu, sjá hnappina hér fyrir neðan. Með mælinum fylgir ítarlegt kennslumyndband og reynslusögur fyrirtækja sem þegar hafa hafið sína vegferð.
Vefræn útgáfa mælisins býður upp á þann möguleika að fá niðurstöður mælinga í skýrslu formi og skipulagt eftir umfangi 1,2 og 3.
Festa gerði samstarfssamning við EFLU verkfræðistofu árið 2020 sem felur í sér mikilvægt framlag sérfræðinga hjá Eflu við að uppfæra Loftslagsmælir Festu í excel og vefútgáfu, skv. árlegum uppfærslum sérfræðingahópsins sem heldur utan um mælikvarðana og uppfærir þá árlega. Framlag Eflu skiptir lítil félagsamtök eins og Festu miklu máli og við kunnum þeim okkar bestu þakkir.
Í sérfræðingahóp Festu og Reykjavíkurborgar um Loftslagsmælingar sitja, auk fulltrúa Festu, eftirtaldir aðilar:
Eva Yngvadóttir, ráðgjafi hjá EFLU – Sigurpáll Ingibergsson, gæðastjóri Vínbúðarinnar/ÁTVR – Snorri Jökull Egilsson, sérfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur – Marta Rós Karlsdóttir, forstöðumaður Auðlinda, ON – Þórhildur Ósk Halldórsdóttir, sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg – Hrönn Hrafnsdóttir, verkefnisstjóri stefnumótunar og þróunar hjá Reykjavíkurborg – Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, einnig frá Vistorku á Akureyri – Rafn Helgason sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun – Sigríður Einarsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
Kennslumyndband þar sem Sævar Helgi Bragason leiðir þig skref fyrir skref í gegnum notkun á Loftslagsmæli Festu. Hvaða gögn þarftu að hafa til að mæla þitt kolefnisspor og hvar nálgast þú þau?
Af hverju er mikilvægt að draga úr og mæla kolefnisspor frá rekstri og hvar byrjum við? Fræðslumyndband þar sem Festa fékk til liðs við sig sérfræðinga frá fimm ólíkum aðildarfélögum sínum sem lýsa í örfáum orðum sinni vegferð þegar kemur að því að setja sér stefnu í loftslagsmálum og mæla kolefnisspor frá rekstri.
Handbók fyrir smærri fyrirtæki – Stefnumótun í loftslagsmálum og mælingar á kolefnisspori. Hvar byrjar þú þína vegferð og hvernig tryggir þú að aðgerðir séu markvissar og skili árangri. Hnitmiðuð handbók sem er afar einföld í notkun.
Öll gögn fræðslupakkans og aðgangur að Loftslagsmæli Festu eru opin öllum og án endurgjalds.
Science Based Targets initiative (SBTi)
Leiðbeiningarnar byggja, eins og nafnið gefur til kynna, á vísindalegum grunni. Nú þegar eru yfir 6000 fyrirtæki í samstarfi við SBT og af þeim eru átta íslensk fyrirtæki (2023).
Nauðsynlegt er að epli séu epli í loftslagsmálum. Því notum við sömu viðmið við losun GHL og úrgangs svo hægt væri að bera árangur fyrirtækjanna saman og fá heildaryfirsýn. Stuðst er við alþjóðleg viðmið á þessu sviði svo íslensk fyrirtæki geti borið sig saman sín á milli og við fyrirtæki um allan heim.
Fyrirtækjum og stofnunum býðst að skrifa undir Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar/Akureyrarbæjar/Hornafjarðar. Þar eru sett fram þrjú skýr og mælanleg markmið sem fyrirtækin vinna að.
Við undirrituð ætlum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum.
Þjóðir heims standa nú frammi fyrir afleiðingum hamfarahlýnunar. Sameinuðu þjóðirnar gegna forystuhlutverki í að greina vandann, takast á við hann og aðlagast breyttum aðstæðum. Fjölmörg af stærstu og áhrifamestu fyrirtækjum heims hafa slegist í hópinn. Vertu með.
Borgir og bæir ásamt fyrirtækjum af öllum stærðum, verða sífellt mikilvægari þegar kemur að því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og standast þau markmið sem sett hafa verið um losun þeirra.
Á Íslandi er helsta áskorunin mengandi samgöngur og losun úrgangs. Við ætlum að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að:
Menntavegur 1
101 Reykjavík
festa@sjalfbaer.is