31.10.24

Hvatningar-verðlaun um framúrskarandi framtak á sviði umhverfismála og um nýsköpun á sviði sjálfbærni 2024

Steypustöðin hlaut hvatningarverðlaun um framúrskarandi framtak á sviði umhverfismála og Krónan hlaut hvatningarverðlaun um framúrskarandi framtak um nýsköpun á sviði sjálfbærni. Til hamingju!


Hvatningarverðlaunin eru veitt samhliða birtingu lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2024. Dómnefnd vann úr lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem sýndu fram á skýra stefnu um samfélagsábyrgð, sjálfbærni, kynjajafnrétti og réttindi starfsfólks. Verðlaunin eru unnin af Creditinfo og Festu – miðstöð um sjálfbærni.


Krónan

Af vef Creditinfo

„Verðlaunin hlýtur fyrirtækið fyrir Heillakörfuna, sérstaka lausn í Krónuappinu sem veitir notendum tækifæri til að safna stigum fyrir vörur sem eru bæði þeim sjálfum og umhverfinu til heilla. Markmið Heillakörfunnar er að stuðla að jákvæðum venjum í daglegum innkaupum og hjálpa notendum að taka meðvitaðri ákvarðanir. Stig eru veitt fyrir vörur í tíu vöruflokkum, sem eru valdir út frá heildrænni nálgun á umhverfisvernd, lýðheilsu, endurnýtingu, umbúðum og vottunum. Notendur geta sett sér mánaðarleg markmið, fylgst með árangri sínum og borið saman innkaup síðustu mánaða. Lausnin veitir yfirsýn yfir vörur sem stuðla að betri heilsu og sjálfbærari framtíð.“


Í dómnefnd sátu Þórólfur Nielsen, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Landsvirkjun, Elín Jónsdóttir, lektor við lagadeild Háskólans á Bifröst og Stefán Kári Sveinbjörnsson verkefnastjóri sjálfbærni hjá Festi og Arent Orri Jónsson Claessen forseti stúdentaráðs Háskóla Íslands.


Steypustöðin

Share by: