07. júni 2022

Sjálf­bærni­skýrsl­ur Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna og Play vald­ar skýrsl­ur árs­ins



Viðurkenningar fyrir sjálfbærniskýrslur ársins voru veittar fyrr í dag við hátíðlega athöfn á Nauthóli. Að þessu sinni voru flugfélag og lífeyrissjóður talin hafa gefið út eftirtektarverðustu skýrslur ársins.



Festa- miðstöð um sjálfbærni, Stjórnvísi og Viðskiptaráð Íslands veittu fyrr í dag viðurkenningar fyrir sjálfbærniskýrslu ársins. Þetta er í fimmta sinn sem slíkar viðurkenningar eru veittar og að vanda var hátíðleg stemning þegar fulltrúar útgefenda skýrslanna veittu viðurkenningunum móttöku. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum og stofnunum sem birta upplýsingar um sjálfbærni sína með markvissum og vönduðum hætti.

Að þessu sinni voru það Lífeyrissjóður verzlunarmanna og flugfélagið Play sem talin voru hafa gefið út eftirtektarverðustu sjálfbærniskýrslur ársins 2022, fyrir rekstrarárið 2021.

Skýrslur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og Fly Play hf. voru valdar úr metfjölda tilnefninga en að þessu sinni bárust 48 tilnefningar þar sem skýrslur frá 33 aðilum voru tilnefndar, sem er tæplega 40% fleiri en hlutu tilnefningu árið 2021.

Svanhildur Hólm Viðskiptaráði, Gunnhildur Arnarsdóttir Stjórnvísi, Gunnlaugur B. Björnsson Viðskiptaráði, Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Birgir Jónsson forstjóri Play, Harpa Júlíusdóttir og Hrund Gunnsteinsdóttir frá Festu. Mynd: hag

Hnitmiðuð og einlæg framsetning mikilvægra þátta


Starfsemi viðurkenningahafa ársins er afar ólík, þó miklar kröfur og strangt regluverk gildi um starfsemi þeirra beggja. Annars vegar er um að ræða lífeyrissjóð, með yfir 60 ára sögu, sem hefur það hlutverk að tryggja sjóðfélögum sínum lífeyri og hins vegar ungt lággjaldaflugfélag sem leggur sig fram um að bjóða lágt verð til skemmtilegra áfangastaða.

Í rökstuðningi dómnefndar fyrir vali ársins segir að sjálfbærniskýrsla Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sé gott dæmi um upplýsingagjöf sjálfbærniþátta eins og best verður á kosið en í skýrslunni er farið yfir markmið, árangur og aðgerðir sjóðsins.

„Upplýsingarnar eru mælanlegar, samanburðarhæfar og viðeigandi fyrir starfsemi sjóðsins. Framsetning er skiljanleg og aðalatriði dregin fram á einlægan máta. Lífeyrissjóðir hafa gríðarleg áhrif í íslensku atvinnulífi, og því mikilvægt að aðrir lífeyrissjóðir taki sér upplýsingagjöf Lífeyrissjóðs verzlunarmanna til fyrirmyndar.“

Play er ungt félag og því að stíga sín fyrstu skref í skýrlsugerð. Til þessa var horft við mat skýrslunnar en í rökstuðningi dómnefndar segir að skýrslan sýni skilmerkilega að fyrsta sjálfbærniskýrsla fyrirtækja þurfi hvorki að vera innihaldslítil né gefa sérstaklega til kynna að fyrirtæki séu að stíga sín fyrstu skref í slíkri upplýsingagjöf.

„Sjálfbærniskýrsla Play er hnitmiðuð, beinir ljósum að mikilvægum þáttum fyrir fyrirtækið, í þessu tilviki losun gróðurhúsalofttegunda. Í skýrslunni er einnig farið yfir hvernig fyrirtækið ætlar að beita sér í loftslagsmálum, sem er jákvætt að sjá fyrir fyrirtæki í jafn mengandi iðnaði og flugiðnaðurinn er.“

Tenglar:


„Upplýsingagjöf sjálfbærniþátta margra íslenskra fyrirtækja er nú orðin að sömu gæðum og við sjáum hjá þeim sem standa sig best erlendis“

Sara Júlía Baldvinsdóttir, Nikólína Dís Kristjánsdóttir og Ísak Grant. Ljósmynd Vilhelm/Vísir

Dómnefnd og nýskipað fagráð

Í dómnefnd ársins sátu þau Reynir Smári Atlason, forstöðumaður sjálfbærnimála hjá Creditinfo sem var formaður fómnefndar, Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og umhverfis hjá Landsvirkjun og Stefán Kári Sveinbjörnsson, verkefnastjóri í stefnumótun og sjálfbærni hjá Isavia.

Reynir Smári Atlason, formaður dómnefndar, segir að mörg íslensk fyrirtæki eigi hrós skilið fyrir vandaða upplýsingagjöf: „Upplýsingagjöf sjálfbærniþátta margra íslenskra fyrirtækja er nú orðin að sömu gæðum og við sjáum hjá þeim sem standa sig best erlendis,“ sagði Reynir Atli Smárason, formaður dómnefndar og útskýrir að þessi fyrirtæki séu betur undirbúin fyrir komandi regluverk og ákall fjárfesta en þau fyrirtæki sem ekki hafa lagt áherslu á slíka upplýsingagjöf.“

Markmið Festu, Stjórnvísis og Viðskiptaráðs með viðurkenningunni er meðal annars ýta undir notkun mælanlegra markmið og vandaðrar upplýsingagjafar á sviði sjálfbærni. Til að sinna því, samhliða stórauknum fjölda útgefinna sjálfbærniskýrsla, var að þessu sinni sett á laggirnar sérstakt fagráð sem lagði mat á allar þær skýrslur sem hlutu tilnefningu og undirbjó störf dómnefndar.

Fagráðið var skipað þremur útskriftar nemendum við Háskólann í Reykjavík en þau hafa öll lokið sérstöku námskeiði með áherslu á sjálfbæran rekstur og upplýsingagjöf, en það eru þau Nikólína Dís Kristjánsdóttir, Ísak Grant og Sara Júlía Baldvinsdóttir. Vísir birti í vikunni áhugavert viðtal við meðlimi fagráðsins og má nálgast það hér: „Stundum verða þessar skýrslur of mikið „sjáið hvað við erum frábær““ – Vísir (visir.is).

Stefán, Jóhanna Hlín og Reynir við afhendingu hvatningarverðlauna fyrir Sjálfbærniskýrlslu ársins í júní 2022

„Opið og upplýst samtal við þá sem hagsmuna hafa að gæta skiptir miklu máli fyrir öflugan rekstur og aðlögun sjóðsins að síbreytilegu rekstrarumhverfi.“

Guðmundur Þórhallsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og Birgir Jónsson forstjóri Play. Mynd: hag



Það skiptir okkur máli að sjálfbærni sé hluti af viðskiptamódeli félagsins og þar með hluti af allri ákvarðanatöku


Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri veitti viðurkenningunni móttöku fyrir hönd Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Guðmundur sagðist taka við viðurkenningunni með stolti og hún væri stjórn, stjórnendum og öllu starfsfólki sjóðsins mikil og góð hvatning til að halda áfram á sömu braut:

“Það krefst góðrar samvinnu og úthalds að breyta starfsháttum og viðteknum venjum. Við gerð skýrslunnar var leitað eftir viðhorfum sjóðfélaga varðandi sjálfbærni í rekstri sjóðsins og kom þar fram rík áhersla þeirra á mikilvægi ábyrgra fjárfestinga og góðra stjórnarhátta. Með sjálfbærniskýrslu LV kynnir sjóðurinn fyrir sjóðfélögum og öðrum haghöfum stefnumótun, markmið og árangur í sjálfbærnivegferð lífeyrissjóðsins. Opið og upplýst samtal við þá sem hagsmuna hafa að gæta skiptir miklu máli fyrir öflugan rekstur og aðlögun sjóðsins að síbreytilegu rekstrarumhverfi.”

Fyrir hönd Play var það Birgir Jónsson, forstjóri sem tók við viðurkenningunni. Birgir sagði að það hljóta viðurkenningu sem þessa á fyrstu metrum flugfélagsins væri fyrirtækinu mikill heiður en ekki síður hvatning:

“Það er okkur mikill heiður og ekki síst hvatning að hljóta viðurkenningu sem þessa á fyrstu metrum flugfélagsins. Frá fyrsta degi hefur PLAY lagt mikla áherslu á sjálfbærni. Það skiptir okkur máli að sjálfbærni sé hluti af viðskiptamódeli félagsins og þar með hluti af allri ákvarðanatöku. Við höfum nú þegar byggt upp sterkan grunn og sett okkur háleit markmið í þessum efnum. Næstu skref eru að innleiða og fylgja eftir þeim markmiðum og lykilmælikvörðum sem við höfum sett okkur. Við förum tvíelfd inn í þá vegferð eftir að hafa hlotið þessa ánægjulegu viðurkenningu” 

„Það skiptir okkur máli að sjálfbærni sé hluti af viðskiptamódeli félagsins og þar með hluti af allri ákvarðanatöku“

Teymin sem komu að sjálfbærniskýrslunum sem hlutu hvatningarverðlaunin í ár




Reynir Smári Atlason formaður dómnefndar flutti fræðandi erindi og afhenti viðurkenningar ársins.

Share by: