Athugið að tengslafundir eru eingöngu opnir fyrir aðildarfélög Festu.
Tengslafundir hafa verið hluti af starfi Festu í fjölda ára. Á Tengslafundi býður eitt aðildarfélag í einu hinum aðildarfélögum í heimsókn þar sem gestgjafinn deilir sinni þekkingu, reynslu og áskorunum þegar kemur að sjálfbærum rekstri. Á Tengslafundunum skapast ávallt áhugaverðar umræður og út frá þessum vettvangi myndast verðmæt sambönd.