Sjálf­bærni­skýrsla árs­ins 2023


Frestur til að skila inn tilnefningum rann út 17.maí


Festa, Stjórnvísi og Viðskiptaráð Íslands auglýstu eftir tillögum um fyrirtæki eða stofnun sem hlýtur viðurkenningu fyrir Sjálfbærniskýrslu ársins 2023 (uppgjör ársins 2022).

Sjálfbær rekstur fyrirtækja skiptir samfélagið sem og fyrirtækin sjálf sífellt meira máli. Skýr stefna, framkvæmd og upplýsingagjöf fyrirtækja varða leið að farsælum rekstri.


Viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins hlýtur fyrirtæki eða stofnun sem birtir upplýsingar um sjálfbærni og samfélagsábyrgð sína með markvissum og vönduðum hætti. Skýrslan getur verið í formi vefsíðu, rafræns skjals eða öðrum hætti sem hentar þeim sem hún á erindi við, s.s. fjárfestum, viðskiptavinum, samstarfsaðilum, yfirvöldum og/eða almenningi.


  • Dómnefnd metur allar tillögur sem berast.
  • Fyrirtækjum og stofnunum er frjálst að tilnefna eigin skýrslu.


Dómnefnd ársins skipa þau:

  • Reynir Smári Atlason – Creditinfo
  • Jóhanna Hlín Auðunsdóttir – Landsvirkjun
  • Stefán Kári Sveinbjörnsson – Isavia


Þá var árið 2022 sett á laggirnar fagráð sem tók að sér að undirbúa starf dómnefndar og meta þær skýrslur sem hlutu tilnefningu, þetta fyrirkomulag reyndist einkar vel og verðuð endurtekið núna árið 2023.


Fagráðið er skipað þremur nemendum við Háskólann í Reykjavík, sem lokið hafa við námskeið sem kennt er af Bjarna Herrera þar sem áherslan er á sjálfbæran rekstur og upplýsingagjöf.


Fagráðið í ár skipa þau:

  • Heiðrún Arna Ottesen Þóroddsdóttir 
  • Kári Jón Hannesson
  • Jóhanna Sól Erlendsdóttir


Share by: