09. 06 2022 - 10:30-12:00
Fjallað verður um sjálfbærnivegferð og áherslur Sjóvá, verkefni í tjónavinnslu og samfélagsskýrslu.
Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni fer yfir áherslur Sjóvá og tækifæri til árangurs. Hjalti Þór Guðmundsson forstöðumaður ökutækjatjóna, Ólafur Þór Ólafsson forstöðumaður eignatjóna og Friðrik Helgi Árnason sérfræðingur í eignatjónum segja frá verkefnum í tjónavinnslu og sjálfbærnivegferð
Halldóra Ingimarsdóttir sérfræðingur í markaðsmálum fer yfir helstu niðurstöður samfélagsskýrslu sem kom út nýverið og skoða má hér: https://www.sjova.is/um-okkur/samfelagsleg-abyrgd/samfelagsskyrsla-2021/.
Pálín Dögg Helgadóttir, verkefnastjóri á skrifstofu forstjóra stýrir fundinum
Menntavegur 1
101 Reykjavík
festa@sjalfbaer.is