Sjálf­bærni­skýrsla árs­ins 2023 – til­nefn­ing­ar óskast (12/4-17/5)

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar!

Festa, Stjórnvísi og Viðskiptaráð Íslands auglýsa eftir tillögum um fyrirtæki eða stofnun sem hlýtur viðurkenningu fyrir Sjálfbærniskýrslu ársins 2023 (uppgjör ársins 2022).

.

Sjálfbær rekstur fyrirtækja skiptir samfélagið sem og fyrirtækin sjálf sífellt meira máli. Skýr stefna, framkvæmd og upplýsingagjöf fyrirtækja varða leið að farsælum rekstri.

Viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins hlýtur fyrirtæki eða stofnun sem birtir upplýsingar um sjálfbærni og samfélagsábyrgð sína með markvissum og vönduðum hætti. Skýrslan getur verið í formi vefsíðu, rafræns skjals eða öðrum hætti sem hentar þeim sem hún á erindi við, s.s. fjárfestum, viðskiptavinum, samstarfsaðilum, yfirvöldum og/eða almenningi.

  • Dómnefnd metur allar tillögur sem berast.
  • Fyrirtækjum og stofnunum er frjálst að tilnefna eigin skýrslu.


Frá afhendingu hvatningarverðlauna fyrir Sjálfbærniskýrslu ársins 2022 en verðlaunin hlutu Lífeyrissjóður verzlunarmanna og PLAY. Svanhildur Hólm Viðskiptaráði, Gunnhildur Arnarsdóttir Stjórnvísi, Gunnlaugur B. Björnsson Viðskiptaráði, Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Birgir Jónsson forstjóri Play, Harpa Júlíusdóttir og Hrund Gunnsteinsdóttir frá Festu. Mynd: hag

Þá var árið 2022 sett á laggirnar fagráð sem tók að sér að undirbúa starf dómnefndar og meta þær skýrslur sem hlutu tilnefningu, þetta fyrirkomulag reyndist einkar vel og verðuð endurtekið núna árið 2023.



Fagráðið var skipað þremur nemendum við Háskólann í Reykjavík, sem lokið hafa við námskeið sem kennt er af Bjarna Herrera þar sem áherslan er á sjálfbæran rekstur og upplýsingagjöf.



Dómnefndin: Stefán, Jóhanna Hlín og Reynir við afhendingu hvatningarverðlauna fyrir Sjálfbærniskýrlslu ársins í júní 2022. mynd HAG

Share by: