07. 06 2022 - 14:00-15:00

Sjálf­bærni­skýrsla árs­ins 2022

Hvatningarverðlaunin fyrir sjálfbærniskýrslu ársins verða veitt þann 7.júní 2022.

Verðlaunin verða í ár veitt í fimmta skiptið og bárust 48 tilnefningar þar sem tilnefndar voru í heildina skýrslur frá 33 aðilum. Þetta er metfjöldi tilnefninga.

Dómnefnd í ár skipa þau:

  • Reynir Smári Atlason, forstöðumaður sjálfbærnimála hjá Creditinfo. Formaður dómnefndar.



  • Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og umhverfis hjá Landsvirkjun


  • Stefán Kári Sveinbjörnsson, verkefnastjóri í stefnumótun og sjálfbærni hjá Isavia


Þá var í ár sett á laggirnar fagráð sem tók að sér að undirbúa starf dómnefndar og meta þær skýrslur sem hlutu tilnefningu. Fagráðið var skipað þremur nemendum við Háskólann í Reykjavík, sem lokið hafa við námskeið sem kennt er af Bjarna Herrera þar sem áherslan er á sjálfbæran rekstur og upplýsingagjöf.

Í fagráði sitja þau:

  • Nikólína Dís Kristjánsdóttir
  • Ísak Grant
  • Sara Júlía Baldvinsdóttir

Að afhendingu lokinni má nálgast lista yfir þær skýrslur sem hlutu tilnefningu á heimasíðu Festu ásamt umfjöllun um þá skýrslu sem hlýtur verðlaunin í ár.

  • Athugið að viðburðurinn er eingöngu opin fyrir boðsgesti

Fyrri vinningshafar:



  • 2018 Landsbankinn
  • 2019 Isavia
  • 2020 Krónan
  • 2021 Landsvirkjun og BYKO


Sjálfbærniskýrsla ársins er samstarfsverkefni Festu, Stjórnvísi og Viðskiptaráðs Íslands.

Frá afhendingu verðlaunanna árið 2021. Svanhildur Hólm framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Gunnhildur Arnarsdóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar, Sigurður Pálsson forstjóri BYKO og Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu

Share by: