24. janúar 2022

Ráðstefnan í ár ber yfirskriftina Á réttum forsendum og vísar í að framtíð okkar veltur á því að við breytum hagfræðihugsun okkar. Markmiðið er að stuðla að efnahagslegri þróun innan þolmarka jarðar og jafnari dreifingu verðmæta milli fólks. Ákvarðanir sem við tökum út þennan áratug aðgerða – til 2030 – mun ráða úrslitum um sjálfbæra framtíð mannkyns um ókomna tíð.

Dagskrá ráðstefnunnar í ár er einstaklega þétt, hnitmiðuð og skipuð af fjölbreyttum hópi leiðtoga og sérfræðinga úr ólíkum áttum í íslensku atvinnulífi. Við kynnum til leiks rokkstjörnur á sviði náttúruvísinda og hagfræði, þau Johan Rockström og Kate Raworth, sem ætla að útskýra hvernig þekking á Þolmörkum jarðar (Planetary Boundaries) og Kleinuhringjahagfræðinni geta stuðlað að góðum ákvörðunum til framtíðar.”

Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, ritar leiðara mánaðarins




Share by: